beautypg.com

Spergilkálsúpa með cheddar-osti – KITCHENAID ARTISAN 5KFPM770 User Manual

Page 334

background image

Íslensk

a

23

Spergilkálsúpa með Cheddar-osti

230 gr sterkur Cheddar-

ostur, kældur

1 lítill laukur, skorinn í

helminga langsum

1 sellerístöngull,

skorinn í 6 cm bita

2 matskeiðar smjör

eða smjörlíki

1 stórt sperkilkálhöfuð

(u.þ.b. 450 gr)

700 ml (3 bollar)

kjúklingasoð

475 ml (2 bollar) mjólk
30 gr (¼ bolli) hveiti

2 teskeiðar Dijon

sinnep

1 teskeið karrýduft,

ef vill

1

8

teskeið sterk

sílípiparsósa

Setjið 4 mm rifdiskinn í vinnsluskálina. Setjið ostinn
ъt н. Rífið. Leggið til hliðar.

Skiptið rifdisknum út fyrir 2 mm sneiðdiskinn í
vinnsluskálinni. Setjið lauk og sellerí ъt н. Sneiðið.
Bræðið smjör í potti við meðalhita. Færið laukinn og
selleríið yfir í pottinn. Svissið í 2 til 3 mínútur þar til
grænmetið er stökkt og hrærið vel.

Skerið stönglana af sperkilkálinu og hreinsið þykkasta
hýðið af. Skerið blómin í litla bita. Látið 2 mm
sneiðdiskinn í vinnsluskálina. Setjið spergilkálstilkana ъt
н. Sneiðið. Færið yfir í pottinn.

Bætið spergilkálblómunum og soðinu í pottinn. Hitið
að suðu yfir meðalhita. Lækkið hitann, lokið pottinum
að hluta og sjóðið í 6 til 10 mínútur, eða þar til
spergilkálið er mjúkt, hrærið annað slagið í súpunni.
Takið af hitanum.

Takið sneiðdiskinn úr vinnsluskálinni og setjið fjölnota
blaðið í staðinn. Færið grænmetið úr pottinum yfir
í vinnsluskálina með gataspaða. Bætið við 180 ml
(¾ bolla) af mjólk. Vinnið þar til fínhakkað, 5 til 8
sekúndur. Setjið til hliðar.

Þeytið vel saman í annarri skál hveitið og afganginn
af mjólkinni (300 ml/1 ¼ bolli). Bætið við sinnepi,
karrýdufti, ef vill, og sterkri sílípiparsósu. Hrærið vel
saman.

Hellið mjólkurblöndunni ъt н soðið í pottinum. Hrærið
vel í og sjóðið við meðalhita þar til súpan fer að
þykkna. Lækkið hitann. Bætið við öllu nema 30 gr
(¼ bolla) af rifnum osti, hrærið þar til osturinn er
bráðinn. Bætið spergilkálblöndunni í pottinn. Hitið vel.
Skreytið með afgangnum af ostinum (30 gr/¼ bolli).

Magn: 7 skammtar (240 ml/1 bolli í skammti).

Orka í hverjum skammti: um 250 hitaeiningar.