beautypg.com

Ef vandamál koma upp – KITCHENAID ARTISAN 5KFPM770 User Manual

Page 327

background image

Íslensk

a

16

Ef vandamál koma upp

• Ef matvinnsluvélin fer ekki í gang,

skal athuga eftirfarandi:

– Aðgætið hvort vinnsluskálin og hlífin

á hana séu réttilega læstar fastar á
vélina og hvort troðarinn hafi verið
settur í ílagsopið að merkinu um
hámarksmagn.

– Athugið hvort snúran hefur verið sett

í samband við viðurkenndan tengil
(sjá „Rafmagnsöryggi“ á bls. 3). Ef
svo er, skal taka matvinnsluvélina úr
sambandi og setja hana síðan aftur
í samband. Fari matvinnsluvélin enn
ekki í gang skal athuga hvort öryggi
á greininni sem matvinnsluvélin er
í sambandi við sй н lagi og hvort
skammhlaup hafi orðið.

• Ef matvinnsluvélin rífur ekki eða

sker þegar diskurinn er notaður:

– Skal ganga úr skugga um að sú hlið

disksins sem er með hnífinn ofan
á snúi upp á pinnanum. Ofan á
diskinum er hnúður og raufar neðan á
til að auðveldara sé að stilla hann af.

• Ef lok matvinnsluvélarinnar lokast

ekki þegar verið er að
nota diskinn:

– Skal ganga úr skugga um að diskurinn

sé rétt settur á, með hnúðinn ofan á
og rétt settur ofan á pinnann.

• Ef matvinnsluvélin slekkur á sйr н

vinnslu:

– Matvinnsluvélin gæti hafa ofhitnað.

Ef mótor hitnar umfram ákveðið
hitastig slekkur hann sjálfvirkt á sér
til að forðast skemmdir. Þetta ætti
aðeins örsjaldan að geta gerst. Ef
það gerist skal styðja á „O“ hnappinn
og bíða í 15 mínútur á meðan vélin
kólnar áður en haldið er áfram. Fari
matvinnsluvélin enn ekki í gang, skal
bíða aðrar 15 mínútur á meðan vélin
kólnar enn frekar.

• Ef erfitt reynist að ná troðaranum

úr ílagsopinu:

– Líklegt er að matvæli hafi fest í

læsingunni. Til að losa troðarann skal
leggja hlífina í bleyti í heitt vatn eða
þvo hana í uppþvottavél.

Takist ekki að leysa vandann með
framangreindum ráðum, skal skoða
kaflann um KitchenAid ábyrgð og
þjónustu á bls. 27-28.