beautypg.com

6 þrif og viðhald – Laerdal Compact Suction Unit (LCSU) 4 User Manual

Page 263

background image

6 Þrif og viðhald

263

Íslenska

Þrif

Varúðarreglur

• Takið LCSU 4 úr sambandi við ytri aflgjafa áður en tækið

er þrifið.

• Notið eins lítið af vökva og hægt er til að koma í veg fyrir

raflost. Ekki dýfa LCSU 4 í vatn eða láta tækið standa í

vatni eða öðrum vökva. Slíkt getur skemmt tækið og/eða

valdið raflosti og meiðslum á fólki.

Viðvörun

Dælið ekki hreinsivökva eða öðrum vökva um

lofttæmisdæluna, þ.e. um lofttæmistengið. Slíkt getur

skemmt LCSU 4.

Meginkassi
1

Takið úr sambandi við ytri aflgjafa.

2

Þrífið yfirborð kassans varfærnislega með mjúkum klút eða

svampi og mildri sápu. Notið uppþvottalög eða svipað efni

sem hentar efnunum sem tilgreind eru í töflunni í 10. kafla.

3

Þurrkið yfirborð með hreinum klút eða pappírsþurrku.

Hylki og slöngur fyrir sjúklinga
Fargið eftir notkun.

Mikilvægt
Hylkin og slöngurnar fyrir sjúkling eru einnota. Reynið

ekki að endurnýta. Farga skal öllum einnota hlutum og

skipta um þá eftir hverja notkun til að koma í veg fyrir

hættu á víxlmengun. Einnota hlutir eru aðeins ætlaðir

einum sjúklingi.

Lofttæmisslanga (fyrir 800 ml gerð) og járngrind
Skolið með því að dýfa og skrúbba í hreinsivökva og

vatnslausn.
1

Hreinsið vandlega í hreinu vatni.

2

Látið hlutina þorna. Sótthreinsið ef þess er óskað.

Afkastamikið síusett (fyrir 800 ml gerð)
• Hvorki er hægt að þrífa né sótthreinsa síuna.
• Skiptið umsvifalaust um síuna ef merki eru um mengun,

aflitun eða ef sían blotnar.

* Ef tækið er notað hjá sjúklingum þar sem hætta er talin á

víxlmengun er ráðlagt að skipta um síuna eftir hverja notkun.

Burðartaska
Þurrkið af töskunni samkvæmt leiðbeiningunum hйr б undan

fyrir meginkassann. Ekki setja töskuna í þvottavél.

Prófun á tækinu

Prófa skal tækið í hvert sinn sem LCSU 4 er sett saman aftur

og áður en tækið er notað á ný.

1

Hefjið prófunina á fullhlaðinni rafhlöðu

2

KVEIKIÐ á tækinu

3

Lokið fyrir slönguna fyrir sjúklinginn

4

Stillið lofttæmið á 550 mmHg

5

Opnið og lokið aftur fyrir slönguna fyrir sjúklinginn

6

Niðurstaða: Tækið ætti að stilla sig á 550 mmHg.

7

Endurtakið ferlið fyrir 300 mmHg og 50 mmHg.

Varúðarreglur

Notið ekki LCSU 4 sem stenst ekki prófið hйr б undan.

Skoðið alla hluta tækisins og prófið það aftur ef LCSU

4 tækið fellur á prófinu. Hafið samband við Laerdal

Medical eða Icepharma ef þörf krefur.

Förgun

Fylgið reglum á hverjum stað við förgun á LCSU 4.

Þetta tæki er merkt samkvæmt Evróputilskipun 2002/96/EB

um raf- og rafeindabúnaðarúrgang (WEEE). Hægt er að koma

í veg fyrir hugsanleg neikvæð áhrif á umhverfið og heilsu

manna með því að farga tækinu á réttan hátt.

Táknið á vörunni eрa б skjölum sem fylgja vörunni

tilgreinir að þetta tæki skuli ekki meðhöndla sem

heimilisúrgang. Þess í stað skal fara með tækið á

viðeigandi endurvinnslustöð til að endurnýta raf- og

rafeindabúnað þess.

Förgun skal fara fram í samræmi við gildandi reglur.

Nánari upplýsingar um meðhöndlun, endurnýtingu og

endurvinnslu á þessari vöru er hægt að nálgast á næstu

endurvinnslustöð eða hjá fulltrúa Laerdal þar sem varan var

keypt.