5 upplýsingar um rafhlöðu – Laerdal Compact Suction Unit (LCSU) 4 User Manual
Page 261

5 Upplýsingar um rafhlöðu
261
Íslenska
Notkun og stilling á sogi
1
Vindið ofan af slöngunni fyrir sjúklinginn (gætið þess að
engir hnökrar stöðvi flæðið).
2
KVEIKIÐ á tækinu með því að эta б hnappinn ( ).
3
Lokið fyrir slönguna fyrir sjúklinginn.
4
3
4
Veljið viðeigandi lofttæmi/sog með því að
snúa stillingunni fyrir lofttæmi.
• Snúið réttsælis (+) til að auka lofttæmi
• Snúið rangsælis til að minnka lofttæmi
5
Lofttæmi birtist á mælikvarðanum 50–550 mmHg.
6
Þegar viðeigandi lofttæmi er náð skal opna fyrir og síðan
loka fyrir slönguna fyrir sjúklinginn.
Niðurstaða: Tækið ætti að stilla sig rétt.
7
Veitið viðeigandi meðferð með sogi. Koma má fyrir sogstút
eða soglegg á slöngunni fyrir sjúklinginn, ef óskað er eftir
slíku.
Mikilvægt
Ef LCSU 4 viðheldur ekki því sogi sem óskað er eftir er
hægt að nálgast upplýsingar um úrræðaleit í 7. kafla.
Eftir hverja notkun
1
Þegar sogi er lokið skal láta LCSU 4 ganga í nokkra
stund þar til allt efni sem hefur verið sogað hefur flætt úr
slöngunni fyrir sjúklinginn yfir í hylkið.
2
Takið hylkið og slönguna fyrir sjúklinginn úr sambandi og
fargið þeim.
3
Þrífið ytra byrði og endurnýtanlega hluta LCSU 4 tækisins
samkvæmt leiðbeiningum (í 6. kafla).
4
Gerið prófun á tækinu (sjá 6. kafla).
5
Hlaðið rafhlöðuna (sjá 5. kafla).
Hleðsla á rafhlöðu
Mikilvægt
Notið eingöngu rafhlöðu frá Laerdal, tilv. nr. 886113.
Varúð
Notkun á rafhlöðum frá öðrum aðilum en Laerdal getur
valdið villum í stöðuljósi fyrir rafhlöðuna, dregið úr
notkunartíma rafhlöðunnar, komið í veg fyrir skilvirka
notkun á LCSU 4 og/eða skapað hættu fyrir stjórnanda
tækisins og/eða sjúklinginn.
Þegar rafhlaðan er í notkun
1
Hlaða verður tóma rafhlöðu í allt að 5 klukkutíma til að ná
fullri hleðslu.
2
Endingartími rafhlöðu: Um það bil 45 mínútur í stöðugri
notkun við ekkert lofttæmi (frjálst flæði) þegar hún er
fullhlaðin.
3
Hlaðið ávallt rafhlöðuna að fullu, fyrir og eftir notkun.
Ráðlagt er að setja rafhlöðuna í stöðuga hleðslu til að
lengja endingartíma hennar. Slíkt skaðar ekki tækið. Hlaðið
rafhlöðuna að lágmarki 24 klukkutíma einu sinni í mánuði ef
stöðugri hleðslu er ekki við komið. Endingartími rafhlöðunnar
styttist ef hún er tæmd að fullu.
Þegar rafhlaðan er ekki notuð í meira en 3 mánuði
• Hlaðið rafhlöðuna að fullu áður en hún er sett í geymslu
• Endurhlaðið hana á 3–6 mánaða fresti
Prófun á rafhlöðu
Prófa skal rafhlöðuna á 6–12 mánaða fresti þegar hún er í
notkun.
1
Hefjið prófunina á fullhlaðinni rafhlöðu.
2
Veljið hámarksstillingu á lofttæmi.
3
Látið tækið ganga í 20 mínútur (frjálst flæði).
4
Lokið fyrir slönguna fyrir sjúklinginn.
5
Skipta skal um rafhlöðuna ef lofttæmi nær ekki 550 mmHg.