beautypg.com

Notkun hraðastillingar – 10 þrepa vélar – KITCHENAID 5KSM150PS User Manual

Page 210

background image

9

Íslensk

a

Notkun hraðastillingar – 10 þrepa vélar

Allar hraðastillingar byrja sjálfkrafa með Soft Start™ sem þýðir að vélin byrjar á hægum
hraða þegar hún er sett í gang til að koma í veg fyrir skvettur í byrjun. Hún eykur svo
hraðann fljótlega upp í það þrep sem stillt er á.

Hraðastillingarþrep

Blöndun
Hraði

BLÖNDUN

Hæg hreyfing, blandar og mylur, byrjunarstig
allrar vinnslu. Notað til að bæta í hveiti og
þurrum efnum í deig og blanda vökva í þurr
efni. Notið ekki hraðaþrep 1 til að blanda eða
hnoða gerdeig.

2 HÆG

HRÆRUN

Hæg hreyfing, blandar og mylur hraðar. Notað
til að blanda og hnoða gerdeig, þykk deig
og sælgæti. Byrjunarstig fyrir kartöflumús og
annað grænmetismauk. Notað til að hræra
smjörlíki saman við hveiti og til að hræra þunn
og blaut deig. Notað þegar dósaopnari er
settur í tengið.

4 HRÆRUN

Notað til að hræra meðalþykk deig svo sem
smákökur og til að krema sykur og smjör eða
bæta sykri ъt н eggjahvítur fyrir marens.
Meðalhraði fyrir kökur. Notað fyrir aukahlutina
hakkavél, rifjárn, pastarúllu og grænmetspressu.

6 HRÖÐ

HRÆRUN

Hröð hrærun eða þeyting. Notað sem lokastig
á kökudeig, kleinuhringi og önnur deig. Hæsti
hraði fyrir kökudeig. Notað þegar sítruspressan
er sett í tengið.

8 ÞEYTING

Notað til að þeyta rjóma, eggjahvítur og glassúr.

10 HRÖÐ

ÞEYTING

Notað til að þeyta minni skammta af rjóma,
eggjahvítur eða til að ljúka við kartöflumús.
Notað fyrir aukahlutina pastapressu og kornkvörn.
ATHUGIÐ: Heldur ekki háum hraða ef álagið
er mikið svo sem við notkun pastapressu og
kornkvarnar.

ATHUGIÐ:

Notið ekki meiri hraða en þrep 2 við vinnslu gerdeigs þar sem það getur

skemmt vélina.

This manual is related to the following products: